Laus tímabundin staða stundakennara í stærðfræði
Bíldudalsskóli auglýsir tímabundna lausa stöðu
stundakennara í stærðfræði
Bíldudalsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli. Í grunnskólanum eru 23 nemendur og í leikskólanum eru 11 en fer fjölgandi.
Í Bíldudalsskóla er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru samskipti, samvinna og sköpun. Fjölbreyttir kennsluhættir, einstaklingsmiðað nám, samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.
Í Bíldudalsskóla eru laus til umsóknar eftirfarandi staða út skólaárið:
Staða stundakennara (23% starfshlutfall). Stærðfræðikennsla á mið- og unglingastigi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
Metnaður til að starfa í teymi
Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
Reglusemi og samviskusemi
Hefur hreint sakarvottorð
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2020.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Allar nánari upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450-2333 eða 8498976
Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is
og verður móttaka umsókna staðfest.