Alþjóðlegi Kabukidagurinn 23. október!
Mánudaginn 23. október er alþjóðlegi Kabuki dagurinn.
Hann er haldinn til að vekja athygli á Kabuki heilkenninu og eru öll hvött til að klæðast einhverju grænu þennan dag. Við í Bíldudalsskóla ætlum að halda upp á daginn með skemmtilegum verkefnum og með því að klæðast græna litnum.
Við hvetjum Bílddælinga til að taka einnig þátt í deginum með því að klæðast einhverju grænu í öllum störfum!
