Bíldudalsskóli auglýsir lausa stöðu í frístund

Bíldudalsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli. Í grunnskólanum eru 24 nemendur og í leikskólanum eru 10 nemendur og fer fjölgandi.
Frístundin er opin alla skóladaga samkvæmt útgefnu skóladagatali. Í frístund býðst nemendum í 1.-4.bekk að dvelja frá skólalokun til kl. 16:00 alla skóladaga.
Í Bíldudalsskóla er laus til umsóknar eftirfarandi staða:
Starfsmaður í frístund 43% starf. Starfið felst í að leiðbeina börnum í leik og starfi, skipulagning á frístundastarfinu, samvinna við börn, starfsfólk skólans og foreldra o.fl.
Hæfniskröfur:
Áhugi á að vinna með börnum
Reynsla af starfi með börnum
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Jákvæðir og góðir samstarfshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2020.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 24. ágúst 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450-2333 eða 8498976
Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is
og verður móttaka umsókna staðfest.