Árshátíð Bíldudalsskóla og Tjarnarbrekku
Árshátíð Bíldudalsskóla og Tjarnarbrekku var haldin mánudaginn 9. apríl og tókst mjög vel. Nemendur skólans höfðu unnið að undirbúningi í smiðjutímum í skólanum. Markmiðið var að vinna með ákveðna hæfni sem byggist á hæfniviðmiðum aðalnámskrá grunnskólans ásamt völdum lykilhæfniviðmiðum. Sem dæmi má nefna að unnið var með hæfniviðmið úr íslensku, samfélagsfræði og sviðslistum.
Þema árshátíðarinnar var hinn ástsæli barnabókahöfundur Astrid Lindgren. Hún var einstaklega afkastamikill rihöfundur og hafa bækur hennar verið þýddar á fjölmörg tungumál og alls staðar hlotið góðar viðtökur. Sögur hennar búa oft yfir ævintýraljóma, eru spennandi og dularfullar og vináttan er oft í forgrunni. Sögupersónur Astrid Lindgren eru ógleymanlegar og þær lifa góðu lífi með nýjum kynslóðum lesenda.
Á árshátíðinni var boðið upp á fimm atriði.
Fyrst var ljóðaflutningur hjá 1.-4. bekk en áratugahefð er fyrir þessu atriði. Nemendur bjuggu til veggspjöld með ljóðinu sínu og myndskreyttu. Síðan lærðu þeir ljóðið utan af og fluttu fyrir framan áheyrendur.

1.-2. bekkur sýndi leikritið um Kalla á þakinu.



3.-4. bekkur sýndi leikþáttinn Aðalmálið er að vera hress.



5.-7. bekkur ásamt leikskólabörnum af Tjarnarbrekku sýndi söngleik um Ronju ræningjadóttur




8.-10. bekkur sýndi leikrit um Emil í Kattholti.




Kynnir á árshátíðinni var Jóna Krista Jónsdóttir nemandi í 10. bekk.
Nemendur skreyttu salinn með verkum sem þeir útfærðu í sjónlistum, unglingastigið bjó til veggspjöld með fróðleiksmolum um Astrid Lindgren, nemendur bjuggu til myndir af þekktustu sögupersónunum og myndirnar voru hengdar upp í salnum, yngsta stigið bjó til bók með skemmtilegum staðreyndum um höfundinn og öll sviðsmyndin var útfærð og búin til af nemendum.



Boðið var upp á glæsilegt hlaðborð í boði foreldrafélagsins.
Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við völd á árshátíðinni, nemendur höfðu lagt hart að sér við undirbúning og sýnt mikinn metnað og uppskáru eftir því. Frábær skemmtun með frábærum krökkum.