top of page

Verkefni um mannslíkamann

Nú á dögum lauk yngsta stig skólans þemavinnu um mannslíkamann.

Í upphafi verkefnisins voru skoðuð þau hæfniviðmið sem stefnt var að með þemanu og út frá þeim ákveðin verkefni. Þau eru skráð í lotu inná Mentor.is og við lok verkefnisins eru þau metin þar inná. Meðal hæfniviðmiða sem unnið var með eru:

- Útskýrt á einfaldan hátt byggingu og starfsemi mannslíkamans,

- Notað einföld hugtök í náttúruvísindum í textaskrifum,

- Hlustað á og rætt hugmyndir annarra.

- Sagt frá sjálfum sér með hliðsjón af búsetu, uppruna, fjölskyldu, siðum og venjum.

Vinnan tengd þessu þema var öll unnin í hópavinnu, með samvinnunni er unnið með hæfniviðmið úr samfélagsgreinum:

- Tekið þátt í samstarfi og samræðu í jafningjahópi

- Hlustað á og greint að, ólíkar skoðanir,

- Sýnt tillitssemi og viðringu í samskiptum og samvinnu við aðra,

- Sýnt tillitssemi og umhyggju í leik og starfi.

Nú þegar hópavinnu verið bætt markvisst í skólastarfið á yngsta stigi og er gaman að sjá hvað nemendur eru fljótir að tileinka sér nýja kennsluhætti. Í myndunum sem fylgja fréttinni má sjá sýnishorn af verkefnum sem voru unnin í tengslum við mannslíkamann. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um þau.

Nýlegar fréttir
Flokkun
Fylgdu okkur
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page