top of page

Sumarlestur - læsisdagatal


Út er komið læsisdagatal Menntamálastofnunar. Læsisdagatal getur verið skemmtileg leið til að hvetja börn til lestrar í sumarfríinu. Sérfræðingar Menntamálastofnunar hafa unnið eitt slíkt foreldrum til stuðnings.

Læsisdagatalið inniheldur fjölmargar spennandi leiðir að lestri, flestar fyrir börn sem eru farin að lesa. Ef barnið þitt hefur ekki náð tökum á lestri getur þú samt sem áður nýtt hugmyndirnar en þú gætir þurft að aðlaga þær að getu barnsins.

Við hvetjum þig til að heimsækja bókasafnið með barninu og stuðla þannig að því að barnið geti valið bækur út frá áhugasviði. Læsisdagatalið er annars vegar útfyllt með hugmyndum og hins vegar óútfyllt þannig að hægt er að fylla inn í það út frá áhuga og aðstæðum. Hægt er að prenta læsisdagatalið út eða vista í tölvu, sk

rá inn dagsetningar og nafn mánaðar og fylla síðan dagana með skemmtilegum og hvetjandi hugmyndum að lestri.

Mikið væri gaman ef þið gætuð deilt myndum af upplifun og útfærslu ykkar af læsisdagatalinu á Instagram-reikningi læsisverkefnis Menntamálastofnunar #gottadlesa

Gangi ykkur vel og hafið gaman saman að lestri í sumar!

Nýlegar fréttir
Flokkun
Fylgdu okkur
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page