Þýskubíllinn
Nemendur á mið-og unglingastigi fengu skemmtilega heimsókn í dag. Þýskubíllinn sem er á leið sinni um landið kom við í Bíldudalsskóla. Tilgangurinn með heimsókninni er að vekja áhuga á þýsku og þýskri menningu. Nemendur fengu að spreyta sig í þýsku, horfðu á skemmtilegt tónlistarmyndband, fræddust um merka staði í Þýskalandi og skoðuðu kort af landinu. Í lokin fengu nemendur þýska fánann að gjöf og gjafapoka. Virkilega skemmtileg heimsókn sem svo sannarlega vakti áhuga á viðfangsefninu.